Gisting/sveitalíf

Sjá video:

Orlofshús til leigu.

 

Við höfum til leigu orlofshús sem rúmar alt að 10 manns í gistingu.  Í húsinu eru 2 svefnherbergi.  Í öðru er tvíbreitt rúm en í hinu eru kojur þar sem sú neðri er tvíbreið.  Auk þess er rúmgott 18 fermetra svefnloft með dýnum.  Eldhúsið er búið öllum nútíma tækjum og áhöldum og í setustofu er sjónvarp með DVD.  Við húsið er skjólgóð verönd með garðhúsgögnum og gasgrilli.  Ekki er aðgangur að heitum potti en hægt er að komast í sundlaug  sem staðsett er í 2 km. fjarlægð.  Upplögð staðsetning fyrir þá sem ferðast um Suðurland, þar sem stutt er til margra vinsælla ferðamannastaða og stutt í margskonar þjónustu. Upplýsingar: bjornjo@vorsabae2.is

Á döfinni.

Ýmislegt í gangi núna:  Sjá hér.

Sveitalíf.

Á bænum er stunduð umfangs mikil hrossarækt, tamningar og sala á hrossum.  Einnig eru á búinu nautgripir, sauðfé, geitur, hænsni, hundar og kettir.

Við tökum á móti gestum hluta úr degi eða í nokkra daga eftir samkomulagi. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu sem miðast við óskir hvers og eins. Fjölbreyttir möguleikar eru í boði.

Skoðið dýrin.

Allan ársins hring er hægt að koma í heimsókn og líta á dýrin og búskapinn.

Þátttaka í störfum.

Hægt er að fylgjast með eða taka beinan þátt í störfum dagsins, en störfin á bænum geta verið nokkuð breytileg eftir árstímum. Tilvalið tækifæri að taka orlofshúsið á leigu og dvelja nokkra daga og upplifa sveitalífið. Gestir geta notið dvalarinnar í tengslum við dýr og náttúru.

Farið á hestbak.

Við höfum 700 fermetra reiðhöll þar sem við getum boðið fólki á hestbak eða teymt undir börnum. Einnig getum við farið í stutta reiðtúra um nágrennið.

Hestar til sölu.

Ávallt er fjölbreytt úrval hesta til sölu. Við val á ,,draumahestinum´´er nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma. Þá er upplagt að dvelja á bænum  til að prófa mismunandi hesta í reið og kynnast þeim í umgengni.

Óvissuferðir.

Farið í þrautir / þrautakeppni.

Tilvalinn möguleiki fyrir vinahópa eða vinnustaði t.d. sem partur af óvissuferð. Við setjum upp þrautir eða þrautabraut sem tengist sveitastörfum,skemmtilegar þrautir við allra hæfi, þar sem hægt er að keppa í einstakslings- eða liðakeppni.

 

VERÐLISTI

Leiga á orlofshúsi: Vetrartími  16.sept.-15. maí:  pr / nótt 13.500 kr.
Sumartími 16. maí – 15. september: pr / nótt 18.000 kr.
Leiga á rúmfötum og baðhandklæði:   pr./ mann 1.300 kr.
Stutt heimsókn (u.þ.b. 1 klst.): Lágmarksgjald fyrir heimsókn: 2.000 kr.
Fullorðnir 16 ára og eldri: 1.000 kr.
Börn 3 – 15 ára: 600 kr.
Börn 2 ára og yngri: Frítt
Hópafsláttur fyrir 10 – 19 manns: 800 kr./pr. 16 ára o.e.
500 kr./pr.15 ára o.y.
Hópafsláttur fyrir 20 manns o.fl.: 600 kr./pr. 16 ára o.e.
400 kr./pr. 15 ára o.y.
Sveitalíf ca 4 klst: 13 ára og eldri: 12.000 kr.
3 – 12 ára: 9.000 kr.
2 ára o. y: FRÍTT
Reiðtúr 1 klst: Per mann 4.500 kr.
Reiðtúr 2 klst: Per mann 8.000 kr.

Dagsferð ca. 5 klst. innif. nesti: 17.000 kr
Teymt undir börnum inni.
1 barn: 600 kr.

ATH: Ekki er tekið við greiðslukortum.