Móðir: Litla-Jörp Vorsabæ 2
Faðir: Hrafn Holtsmúla.
Kynbótadómur: 8,39-8,71=8,58
Þegar verið var að telja atkvæði í forsetakosningunum aðfaranótt 30. júní 1996 fæddist jarpt hestfolald í Vorsabæ 2. Strax var ljóst að kominn var sigurvegari kosninganna og því ákveðið að skíra hann nafninu Forseti. Það var aldrei nein spurning um að láta hann halda öllu sínu enda myndarlegt og hreyfingafallegt folald. Björn frumtamdi Forseta á fjórða vetri en 10. april 2000 var svo farið með hann til stórknapans á Hellu, Þórðar Þorgeissonar, sem tók við þjálfuninni. Það gerði Þórður með sóma og mættu þeir í forskoðunardóm þann 11. júní fyrir landsmót árið 2000. Þar gerðu þeir félagar það gott og hlaut Forseti einkunnina 8,00 fyrir byggingu, 8,08 fyrir hæfileika og 8,05 í aðaleinkunn. Á landsmótinu sama sumar hækkaði hann og fékk í aðaleinkunn 8,12. Árið eftir mættu þeir aftur óhræddir til leiks og stóð Forseti efstur á sýningu í Reykjavík með aðaleinkunnina 8,23. Ekki var látið staðar numið við svo búið og árið eftir mættu þeir kappar enn og aftur á landsmót og nú á Vindheimamelum í Skagafirði. Þar hafði bróðir Forseta og frændi, Gassi frá Vorsabæ II, staðið næst efstur í 6 vetra flokki stóðhesta sumarið 1990. Forseti afrekaði það einnig því hann lenti þar í öðru sæti með einkunnina 8,39 fyrir byggingu, 8,71 fyrir hæfileika og 8,58 í aðaleinkunn. Þar með var hann orðinn hæst dæmdi stóðhestur 6 vetra og yngri í heiminum og hæst dæmda afkvæmi Hrafns 802 frá Holtsmúla.
|
|
|
Afkvæmi Forseta eru nú að tínast inn í kynbótadóm og nú haustið 2010 er búið að fulldæma 28 afkvæmi hans. Þar af eru 15 með 1. verðlaun. Hæst dæmdu afkvæmin eru:
Hilda Bjarnarhöfn 8,54
Þröstur Hólum 8,37
Óratór Vöðlum 8,35
Snerpa Vorsabæ 2 8,27
Myndir af afkvæmum Forseta fæddum okkur hér í Vorsabæ 2.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Stóðhestar Vorsabæ 2.
<tbody>
<tr>
<td></td>
<td></td>
</tr>
</tbody>
</table>











